Ég er alveg ótrúlega dugleg. Mér tókst að setja inn teljara og gestabók alveg sjálf. Endilega skrifið eitthvað fallegt í gestabókina mína:]
Frænka mín Hrafnhildur Sif sem er 1og1/2 árs er í heimsókn. Hún ætlar að skrifa nokkur orð:
,mmmmmmmmmmmmmmm mcygfdþ
bb vfdhng fdfbhfghv d s d
Vill einhver góðviljaður segja mér hvernig á að gera linka?
Bjarki, litli bróðir minn á líka afmæli í dag, þann 04.04. Hann er kominn á tvítugsaldurinn. Gaman að því. Ég óska honum hér með hjartanlega til hamingju með daginn.
Jeij...............ég er búin að eignast blogg! En gaman! En æðislegt. Ég vissi ekki að það væri svona gaman að eiga blogg. Það er allt henni Siggu að þakka að nú getið þið lesið allt um líf mitt sem er að sjálfsögðu mjög spennandi. Svo væri auðvitað ekki úr vegi að koma með smá pólitískan áróður nú þegar kosningar eru svo nærri..............................neeeeii kannski ekki. Eða jú kannski en bara stundum.....:] En takk Sigga fyrir þetta æðislega blogg. Mér hafði náttúrulega ekki dottið í hug að fá einhvern annan til að gera blogg fyrir mig eftir margar árangurslausar tilraunir til þess sjálf:/ Þú ert klók Sigga.
Nú þarf ég að fara að gera afmæliskort handa Steinvöru því ég er að fara í afmæli til hennar og Signýjar á eftir þó að ég sé pínu veik og hafi ekki komist í skólann í dag og þar af leiðandi misst af kökuáti með stelpunum í hádegishléinu í tilefni af afmæli Steinvarar og Signýjar. Vá löng setning. Sökum veikinda minna missti ég einnig af dragkeppni í skólanum og, það sem verra er, tónleikum í hinu húsinu þar sem Noise og fleiri hljómsveitir voru að spila. Árinn sjálfur >:[