Það er mjög gott ráð við þynnku að fá sér blund undir berum himni í svona tvo til þrjá klukkutíma í sól. Það fylgir því þó alltaf nokkur áhætta ef maður er staddur úti á miðjum golfvelli.
Ég mæli líka með skyndiákvörðunum, sérstaklega skyndiákvörðunum eins og að taka Herjólf til Vestmannaeyja kl. 7 að kvöldi og tilbaka kl. 8 að morgni. Ekki skemmir fyrir ef þar er í gangi tryllt rokkhátíð.
Já, þetta og sitthvað fleira afrekaði ég þessa Hvítasunnuhelgi sem er reyndar síður en svo búin.