Eins og þið eflaust hafið tekið eftir þá kom ég fyrir mynd af mér hérna í hliðardálkinum. Einfaldlega vegna þess að ég kann það, lærði það alveg upp á eigin spýtur. Það eru samt engin rosaleg gæði á þessari mynd, hún er tekin með webcam.
Annars er ég bara í góðum fíling hér á þessum indæla sunnudegi að hugsa um hvað ég á að taka mér fyrir hendur næst. Kláraði nefnilega að læra í gær sem setur allt úr skorðum því venjulega læri ég aldrei fyrr en á sunnudagskvöldi og sunnudögunum eyði ég í að finna mér eitthvað annað að gera en að læra. Og það er jú alltaf svo auðvelt. En núna veit ég bara ekkert hvað ég á af mér að gera.....
Ég var að uppgötva alveg frábært lag og alveg frábæran disk. Eða nei, nú lýg ég allsvakalega. ÉG var ekki að uppgötva hann heldur uppgötvaði Egill bróðir minn hann fyrir nokkru og ég var bara að skrifa hann núna áðan. Ég get ekki lýst því með orðum hvað það er þægilegt að eiga bróður sem er alltaf að ná í allskonar nýja tónlist sem ég hef aldrei heyrt um. Svo fer ég bara í tölvuna með reglulegu millibili og pikka út það sem mér finnst skemmtilegt. Ég vona að honum sé sama. Ég er nefnilega ekkert góð í að uppgötva nýja tónlist því ég nenni aldrei að hlusta á heilan disk í gegn nema að það sé diskur þar sem hvert lag grípur mig um leið. Stundum nenni ég jafnvel ekki að hlusta á heilt lag í gegn. Þetta er einn af ókostunum þess að vera óþolinmóðasta manneskja heims. Ætli það séu einhverjir kostir yfirhöfuð? Það allavega nýtist mér alls ekki á ljósmyndanámskeiðinu þar sem drjúgur hluti af tímanum fer í að bíða. Þrátt fyrir það finnst mér ótrúlega gaman á því. Enda er ég í góðum félagsskap.
Jæja, allavega, sniðugt kannski að segja ykkur hvaða lag og diskur þetta er áður en þið alveg deyið úr forvitni.........
Hann er með hlómsveitinni Neutral Milk Hotel og heitir In The Aeroplane Over The Sea ef mér skjátlast eigi. Og lagið er það fyrsta á disknum og heitir The King Of Carrot Flowers. Þar hafið þið það. Þetta er alveg mjög kúl lag og textinn er líka flottur, ég er reyndar ekki búin að stúdera hann mikið. Synd samt, að lagið er bara tvær mínútur að lengd. Það er þó í lagi því það er fullt af öðrum kúl lögum á þessum disk. T.d. Two-Headed Boy.
Lag dagsins:
Neutral Milk Hotel - The King of Carrot Flowers, væntanlega...