Mig hefur aldrei nokkurn tímann á ævi minni langað jafnmikið í sumar. Ég held reyndar að það eigi við um vel flesta Íslendinga einmitt núna. Ég var að kíkja á gömul blogg síðan í maí 2003 bæði hjá mér og Siggu og það var svo ótrúlega skemmtilegur tími.....vá. Það er virkilega gaman að lesa gömul blogg og það hvetur mig til dáða að skrifa eins og t.d. núna. Svo ég geti kíkt á það í sumar og hugsað "en hvað ég á gott núna". Það vill nefnilega stundum gleymast hvað maður á gott akkúrat meðan það stendur yfir og svo þegar það er búið langar mann ekkert meira en að fá það aftur því þá allt í einu man maður bara það góða.
Annars hefur sunnudagurinn í dag ekki verið eins leiðinlegur og eg á að venjast. Það er vegna þess að það er ekki próf á mánudaginn (reyndar eru próf á þriðjudaginn og fimmtudaginn en það allt annað). Því gat ég heimsótt ömmu og afa í fullkomnu stress-leysi, hangið svolítið í tölvunni, hlustað á tónlist og reynt að koma mér inn í sjónvarpsþáttinn Örninn sem gekk reyndar ekki. Þess í stað fór ég að spila við systur mína.
Hér kemur listi yfir það sem ég get eldað vandræðalaust:
pakkahrísgrjónagrautur og ýmis annar pakkamatur, t.d. 3ggja mínútna núðlur tortillas og þannig (þ.e.a.s. ef ég kaupi tilbúinn kjúkling)
Ég man ekki meira í augnablikinu, efast samt um að það sé mikið í viðbót. Þetta nægir mér líka alveg. Afhverju þarf alltaf að vera að elda allt ofan í sig? Afhverju er ekki nóg að fá sér bara ristað brauð eða skyr eða papriku eða ávexti......? Möguleikarnir eru óþrjótandi.