Hmmm....Herbert Guðmundsson er greinilega ekki að falla í kramið. Enda kveikti sonur hans í bílnum mínum.
Jæja ég var að koma frá Steinvöru það sem við vorum að gera kort fyrir hana Soffu sem er 16 ára í dag. Svo vorum við að finna orð út úr símanúmerunum okkar og það kom í ljós að ég er með svalasta símanúmerið en það er ugobizl.
Ég lagaði bloggið mitt. Rót vandans var könnunin sem ég kom nýverið fyrir hér til hliðar, sem er fúlt því mig langaði rosalega að vita niðurstöður könnunarinnar. Ég reyni bara aftur seinna
En hvað það er gott að geta tjáð sig á ný.
Það hefur nú ekki mikið gerst í bilanatíð bloggsins míns. Vetrarfríið kláraðist og þessa tvo daga sem ég hef verið í skólanum hafa liðið í eymd vegna þess mikla námsleiða sem ég þjáist af. Hann beinist aðallega að fögunum stærðfræði og eðlisfræði. Og ekki stefnir í bjartari tíma því ég verð líklegast fram á nótt að klára einhver helvítis eðlisfræðisjálfspróf sem ég er orðin of sein að skila.
En nóg um það. Bara eitt að lokum: Veit einhver með vissu hvort það sé bannað að hafa húsdýr eins og kindur í garðinum sínum?
Ég var að fatta að það eru allir nýbúnir að blogga nema ég. Það er auðvitað alls ekki nógu gott.
Svo nú ætla ég að reyna að blogga um eitthvað uppbyggjandi, ekki um hvað mér leiðist mikið. Staðreyndin er nefnilega sú að mér leiddist harla lítið allt vetrarfríið þó að ég hafi ekki gert rassgat. Hlýtur að vera met.
Þetta að sjálfsögðu leiðir af sér að það er afskaplega lítið að frétta.
Ég er að hugsa um að fara að sauma mér pils fyrir eplaballið sem er bráðum.