Vá hvað það er eitthvað langt liðið síðan seinast....ég skil þetta ekki.
Ég veit ekki hvort ég hef minnst á það nógu oft hér en mér finnst sumarið yyyyyndislegt! Í dag er ég ekki búin að gera neitt nema labba um hverfið, kaupa mér ís og reyna að sauma út. Það gekk ekki vel. Það var líka allt of heitt úti í garði. Svo fór ég í Melabúðina og keypti lambaket á grillið....mmmm.....ég hlakka til að borða það.
Einhver plön hafði ég um að laga til og þrífa í dag. Það fór eitthvað út um þúfur. Ég bara get ekki verið inni í svona veðri, samt er ég úti alla vikuna. Ég ákvað líka að það væri mun hentugra að laga til á morgun.
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst mjög asnalegt þegar fólk segir eitthvað eins og þetta: ,,Ekki móðgast en mér finnst blablablablabla....." Þetta er miklu dónalegra en að segja hlutinn bara hreint út því að greinilega veit viðkomandi þarna að það sem hann ætlar að segja mun koma til með að móðga mann en hann ákveður samt að skella því svona framan í mann eins og blautri tusku. Ekki nóg með það, heldur ætlast viðkomandi beinlínis til að maður móðgist ekki. Þvílík tilætlunarsemi og heimtufrekja. Ég hef ekki lent í þessu uppá síðkastið eða neitt svoleiðis, ég var bara að velta þessu fyrir mér þar sem ég hef svo mikinn tíma til að velta hlutum fyrir mér í vinnunni minni í Grasagarðinum innan um fallegu blómin og illgresið. Og það er bara besta mál....það er ágætt að hugsa svolítið inná milli.