Vá ég hef ekki bloggað síðan 12. september......og nú er kominn 25!
Það er bara því ég hef svo mikið að gera.......í menntaskóla og svoleiðis.
Nei, nú lýg ég. Ég hef ekkert mikið að gera.ég hef satt að segja voða lítið að gera og það líður ekki sá dagur núorðið að mér leiðist ekki. Ég er mjög eirðarlaus manneskja. Og svo er eins og allir aðrir hafi rosalega mikið að gera og ég er alltaf bara ein að láta mér leiðast. Hvað er fólk að gera? Ég verð að fá mér vinnu eða eitthvað. Það er bara svolítið erfitt að finna svoleiðis.
Það er alveg ágætt í skólanum. Nema að bekkurinn min er svolítið geðveikur.
Ég keypti mér gamla diskinn með The Coral á Skífumarkaðnum. Og disk sem nefnist Óskalögin 3 og hefur að geyma fullt af gömlum íslenskum lögum sem maður getur dansað asnalega við.
Lög dagsins:
Fyrsti kossinn - Hljómar oooooooog The small print - Muse