Núna er Lena á leið til Danmerkur.........en ég öfunda hana ekki neitt því bráðum, já bráðum, verð ég sjálf á leið til Kaupmannahafnar.
Því miður hef ég ekkert skemmtilegt að skrifa um því það er ekki beint mikið að gerast um þessar mundir og ég er ekkert að fylgjast með fréttum eða neitt svo ég get ekki sagt mínar skoðanir á því sem er að gerast í þjóðfélaginu.
Jú, reyndar er ég orðin geðveikt góð á einhjólinu mínu, bráðum ætla ég að kaupa mér alvöru einhjól með engum hjálpardekkjum og ferðast á því um hverfið á því og þá verð ég alltaf kölluð "Auður, betur þekkt undir nafninu einhjólastelpan".
Svo get ég farið að vinna í sirkus, þá ekki sem línudansari (ss. sem dansar á línu, ekki kúrekadans) eins og mig hefur alltaf langað heldur sem einhjólari. Það er jafnvel svalara. Svo get ég tekið vini mína með og hjólað um með þá á háhest, og svo get ég lært að joggla með þremur boltum eða jafnvel hnífum. Það eru ótal möguleikar í stöðunni. En fyrst er að kaupa einhjólið, veit einhver hvar hægt er að ná í slíkt?
Mig langar svo á einhverja tónleika, ég vildi að ég væri orðin 18 og ætti fullt af pening.
Lag dagsins:
Another morning stoner - And you will know us by the trail of dead
Ég var að horfa á Zoolander með Siggu og Signýju. Þessi mynd er algjör snilld! Ég mæli eindregið með henn.
Ég var að uppgötva að í Kvennaskólanum í Reykjavík, þar sem ég hyggst stunda nám næsta vetur, er ekki skólasetning fyrr en 25. ágúst. Þetta eru miklar gleðifregnir fyrir mig því að ég var alltaf að miða við miðjan ágúst. Ég var bara viss um að sumarfríið mitt væri eiginlega búið þegar ég kæmi heim frá Danmörku en svo er alls ekki. Ég hef alveg níu daga til þess að tjilla í sveitinni eða eitthvað. Alls ekki svo slæmt!
Ég var að kaupa mér nýjan Jordan tannbursta. Hann er blár og ljósblár og utan á honum stóð soft, sem merkir að hann á að vera með mjúkum hárum, ef einhverjir skyldu ekki vita, en hann er bara með grjóthörðum hárum! Ég ætla aldrei aftur að kaupa mér Jordan tannbursta!
Um daginn borðaði ég appelsínu sem bragðaðist alveg eins og mandarína. Það minnti mig mjög á jólin.
Nú ætla ég að blogga smá fyrir þá einstaklinga sem þrífast á orðum mínum um daginn og veginn
Ég vil byrja á því að óska þeim sem hafa komist inn í skólann sem þeir sóttu um til hamingju.
Meira veit ég ekki hvað ég á að segja. Jú! Ég sigraði Egil í minesweeper keppni í msn. Það er mikið afrek því þessi leikur er líf hans um þesar mundir og nú situr hann sorgmæddur inni í herbergi. MUHAHAHAHAHAHAHA!!!!