Í færslunni hér að neðan var ég að vísa til þessa hérna fallega hlutar sem er nú opinberlega í minni eign. Það finnst mér sko gaman :D
Helgin var ein sú besta í manna minnum hvað nýtingu varðar. Ég fór í Smáralind og keypti dót og afmælisgjafir, gerða mikla heimavinnu (sem fólst í því að dunda mér við að mála og föndra), lagaði aðeins til, spilaði á hin og þessi hljóðfæri, fór á línuskauta og í sund, kíkti í nokkrar hljóðfærabúðir og á listasýningu, fór í afmæli til Helgu, fór í fornámspartý, eyddi nótt niðri í bæ, gæddi mér á gourmet núðlurétti þegar heim var komið, fékk mér blund, fór í Kolaportið ásamt pabba og Gunnhildi, fékk mér kaffi (tók nefnilega þá ákvörðun á sunnudaginn að byrja að drekka kaffi en ég er eiginlega hætt við), kíkti á enn eina listasýninguna, spilaði aðeins meira á hljóðfæri, fór í barnaafmæli til Hrafnhildar sem varð 5 ára í gær ooooooog fór í vinnuna!
Allt þetta á einni helgi! Belív itt or nott. Ég efast samt um að einhver hafi nennt að lesa þetta. Hafði kannski átt að gera þetta á punktaformi.
Svo má ekki gleyma að á fimmtudagskvöldið átti ég huggulegt bjór- og nachoskvöld ásamt þremur skemmtilegum vinnufélögum.
Úff....ég held ég hafi bara aldrei gert jafnmikið á jafnstuttum tíma.