Hér er skráningarform fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í Stjörnuleitinni á Stöð 2 í haust. Hehehehehehe.............
Já, ég er ekki búin að fara út í allan dag af ótta við að verða veik aftur vegna þess að ég er dálítið slöpp. Ég er að vona að það sé bara þreyta, eftir að hafa mætt í vinnuna síðustu þrjá daga and vorked mæ ass off. Eða nei, reyndar gerði ég það ekkert. Þessir þrír dagar voru mjög næs vegna þess að vinnustjórinn okkar er svo góð, alltaf að kaupa nammi handa okkur og svona.
Árans, rækallsins, ekkisens, ég get ekki skrifað neina diska, það er eitthvað að skrambans skrifaranum og ég sem er nýbúin að kaupa mér 25 tóma diska. Og ég sem ætlaði að skrifa fullt af diskum fyrir vinkonur mínar og fyrir ferðalagið sem við förum í næstu helgi ef guð lofar.
Í gær kom Helga heim frá Deutschlandi. Jeijj.
Já og vitiði hvað? Næsta sumar fer ég til Ástralíu.
Ég er að fara í vinnuna á morgun, jibbý jeij! Ég er vart búin að fara úr húsi í sjö. Ég fékk ekki einu sinni að horfa á nágranna því við erum ekki með stöð tvö í augnablikinu. Ég horfði á Leiðarljós í staðinn. Það var alls ekki svo slæmt. Ég má ekki verða háð. Ég verð samt eiginlega að horfa á næsta þátt, því Bridget er kannski að fara að eignast barnið sitt, löngu fyrir tímann!
Vá, allar setningarnar hér að ofan nema ein byrja á ég. Það er svona þegar maður hangir (eða á að segja hengur?) einn heima allan daginn.