Jólaseríur eru yndislegt fyrirbæri. Ég elska að labba um bæinn í myrkrinu í desember og horfa á öll ljósin. Það er eitt það allra besta við jólin. Sjálf var ég að enda við að troða jólaseríu á einn af litlu ljótu runnunum í garðinum okkar. Það er bara mjög fallegt en kostaði það að ég kól næstum því á puttunum.
Ef við förum svo út í heldur glataðri sálma þá er stærðfræðipróf á mánudaginn og mér finnst stærðfræði ekki skemmtileg. Ég er alltaf betur og betur að komast að raun um það. Það er þó bót í máli að stærðfræðiprófið er eiginlega eina prófið sem ég get lært undir og hlustað á tónlist í leiðinni \o/
Eivør Pálsdóttir og Bill Bourne og fleiri hafa hjálpað mér í gegnum þessa leiðinlegustu helgi lífs míns og gert hana ögn bærilegri.