Hey dúds...tékkið á myndum úr afmælinu mínu undir marglitaða linknum myndirnar mínar :D
Takk fyrir, allir sem komu, ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel! Og það sem meira er, engar sjáanlegar slæmar afleiðingar fyrir utan blöðru á fætinum sem er stærri en litlatáin mín. Hana má að öllum líkindum rekja til of mikillar notkunar á gullskónum mínum. Ég vil þó benda á að þetta er ekki skónum að kenna, ég tek alla ábyrgð á mig sjálfa.
Einhverjir höfðu áhyggjur af að húsið mitt væri að hrynja en það stendur enn svo þetta er allt í lagi!
Hvaðan kemur sá gríðarstóri misskilningur að sálfræðingur með hormottu og meira sjálfsálit en efni standa til sem er að þjarma að feitu fólki og í flestum tilfellum að græta það sé skemmtilegt eða á einhvern hátt áhugavert sjónvarpsefni?