Ég veit ekkert skemmtilegra en að sitja í skítugu beði á heitum og sólbjörtum degi á miðri umferðareyju, þakinn lirfum og kóngulóm, innan klæða sem utan, heyra í hljómfögrum bílaniðinum útundan sér og finna dásamlegt göturykið þyrlast um rjóða, sólbrennda vangana.
Ég og Lena ætlum að vera duglegar í fyrramálið og fara í sund kl. 7. Kærir einhver sig um koma með?
Ég og Lena erum alltaf að gera eitthvað heilsusamlegt. Í dag fórum við t.d. á línuskautum í Nauthólsvík og svo heimsóttum við Steinvöru.
Það var mjög skemmtilegt og heilsusamlegt.
Það er bara fínt í unglingavinnunni. Ég og Signý erum bara að nördast saman í allskonar leikjum sem ég bý til. Ég er svo góð í að búa til leiki til að stunda þegar manni leiðist og vill að tíminn líði hraðar að ég hef ákveðið að gefa út bók sem ber heitið "Þegar maður hefur ekkert að gera".
Á morgun er fimmtudagur og þá á að vera På Torsdag æfing. Ég er búin að ákveða það. Þetta gengur ekki lengur, við verðum að hafa æfingu til að við getum byrjað að spila á tónleikum og gefa út kasettu. En fyrst verðum við að laga aðeins til í bílskúrnum og redda bongótrommum. Á einhver bongótrommur?
Svo vantar járnstykkið sem er notað til að lemja á þríhornið.
Ef einhver hefur þessa hluti í fórum sínum og vill losna við þá má sá hinn sami endilega hafa samband.
Jæja þá er ég komin heim eftir stutta dvöl meðal ættingja í Ólafsvík. Það er nú skemmtilegur bær. Ég fór ásamt ömmu minn í búð þar í bæ sem af útstillingunni að dæma virtist vera barnafatbúð en þegar inn kom blasti við okkur heil hilla af áfengi ásamt fullt af garni og barnafötum inn á milli. Þetta reyndist því vera vínbúð, garnbúð og barnafatabúð, allt í senn. Þeir eru rosa sniðugir þarna í Ólafsvík. Svo er kirkjan í laginu eins og saltfiskur.
Það er svona helst að frétta að í sumar verð ég með Helgu og Signýju að vinna hjá Vesturbæjarskóla. Það á eftir að vera geggjað stuð.
Svo er ég búin að fá góðfúslegt leyfi jarðeigandans á Hríshóli til að tjalda þar eina helgi í sumar. Við verðum að fara að skipuleggja, ferðafélagar. Eigum við að fara með rútu? Það er svolítið dýrt en kannski fáum við hópafslátt, hver veit........
Svo er hún Hildur Helga 16 ára í dag og ég óska henni hjartanlega til hamingju með það.
Ekki nóg með það heldur á frænka mín Elfa Björk, sem var að fermast í gær, líka afmæli í dag. Hún er 14 ára. Til hamingju!