Í dag komst ég í almennilegt jólaskap. Það gerðist þegar ég þaut á hraða ljóssins inn og út úr Rúmfatalagernum án þess að finna það sem ég var að leita að og öryggisvörðurinn sem sat við þjófavarnarhliðið náði á einhvern undraverðan hátt að óska mér gleðilegrar hátíðar. Gleðilega hátíð. Hátíð er miklu skemmtilegra orð en jól.
Ég er búin að pakka inn miklum meirihluta jólagjafa þessara jóla sem er mjög óvenjulegt fyrir mig. Ég ætla samt að geyma allavega eina gjöf sem ég ætla að kaupa kl. 22:57 á Þorláksmessukvöld. Það tilheyrir.