Eg held thid megid thakka fyrir ad eg se a lifi...eda bölva thvi eda hvernig sem thad er.
Nottin sem leid var nefnilega all svakaleg. Thad byrjadi allt thannig ad...uuu...vid forum i solbad uti i thakgluggunum okkar. Thar er sjaidi til sol langt fram a kvöld annad en uti a götu. sidan opnudum vid hina tvo thakgluggana bara...af thvi ad thad var heitt eda eitthvad. Sidan forum vid ad spila a gitarinn og aefa okkur fyrir trubadorturinn okkar um götur og garda i Berlin. Eg nefnilega keypti mer gitar a tonlistardeginum mikla sem var i gaer. I tilefni hans forum vid lika ad hlusta a President Bongo Dj-a a Sternradio sem er a Alexanderplaz her rett hja og thvi forum vid a bak fakunum okka. Enda edalferdamati her i borg.
Fyrst hittum vid reyndar fjora fimmtuga astrala a bar sem eru ad ferdast um evropu i rugbraudi og bordudum ogedslegt Schawarma med frönskum i. Medan a thvi stod kom thetta myndarlega thrumuvedur...en vid letum thad ekki a okkur fa og hlupum ut til ad komast a Sternradio. A midri leidinni fattadi eg ad lyklakippan min hafdi hoppad upp ur vasanum minum en a henni eru hjolalyklarnir og ibudalyklarnir = ekki gott mal. Svo vid snerum vid og settum a okkur röntgenaugun, frekar stressadar. Svo lagu lyklarnir bara tharna rett fyrir utan barinn sem vid vorum a. Thad var mikil gledistund en vid vorum ordnar nokkud blautar svo vid forum inn a einhverja matarbullu og keyptum tvo plastpoka a eina evru...thad ma vissulega deila um verdlagningu thessa en pokarnir komu ser vel. Vöktu reyndar nokkud mikla athygli og hlatur sem eg skil ekki alveg...i alvörunni sko. Berlinarbuar eru svolitid up-tight.
En vid komumst loksins a Sternradio og dönsudum eins og bavianar. Thad var gaman.
Thad var enntha sama urhellid thegar vid akvadum ad finna hjolin okkar og halda heim. Thess vegna komum vid okkur fyrir undir svona blokkarskyli eins og folk gerir i biomyndunum og fylgdumst med blossunum og hlustudum a thrumurnar og töldum sekundurnar a milli. Eftir ad hafa safnad kjarki stigum vid a bak fakunum og thutum heim a leid a hrada ljossins.
Nu jaeja. Veit ekki hvort thid veittud thvi athygli fyrr i frasögninni en vid buum i thakibud med thakgluggum sem vid höfum nokkud oft opna sökum hita. Thvi hafdi myndast myndarlegt stöduvatn a midju stofugolfinu. Nokkur minni var ad finna a eldhusbekknum, ofan i hnifaparaskuffunni (hahaha), i Berliner Pilsener bjorglasinu minu sem eg stal af barnum um daginn og nokkrum ödrum glösum, pipuhattinum minum og svona hinu og thessu smalegu. Thetta var natturulega nett sjokk svona fyrst um sinn en sidan forum vid ad sja komisku hlidina a thessu, tokum fram öll handklaedin og reddudum thessu a notaem. Nuna er ibudin okkar skinandi hrein og fin, meira ad segja buid ad vaska upp allt leirtauid fyrir seinustu viku svo vid getum farid ad borda heima a ny eftir sma hle...vid attum nefnilega ekki uppthvottabursta.
Tölvan min er lika alveg skinandi hrein og fin en thad er kannski ekkert vodalega gaman thar sem hun virkar eigi lengur...eda hun er ad thorna og eg vona thad besta.
Thad er astaedan fyrir thvi ad eg er i tölvuveri skolans nuna.
Nu er kominn laugardagur og thad er skyjad og rigning i Berlin i fyrsta sinn i dvöl okkar her svo thad er litid annad ad gera en ad byrja ad undirbua trubadoraferilinn.
Jæja krakkar mínir. Núna er Auður búin að vera 6 daga í stórborginni Berlín. Þar finnst henni gaman að vera. Hún er búin að kaupa sér appelsínugult hjól og pípuhatt og gerir í raun og veru ekki mikið annað en að hjóla um hin ýmsu hverfi borgarinnar. Hjólið keypti hún á flóamarkaði í garði einum sem heitir Mauerpark. Þar mun hún einnig eyða næstu tveimur sunnudögum.
Á þriðjudaginn var stóri alþjóðlegi tjilldagurinn. Þá hjóluðum við á fákunum okkar (Viktor og Hektor) bara eitthvert og stoppuðum í fyrsta garðinum sem við sáum, snerum hjólunum á hvolf því það er töff og lögðumst til hvílu.
Á miðvikudaginn var framkvæmdadagurinn mikli. Þá hjóluðum við eins og enginn væri morgundagurinn, fórum í búðir og elduðum dýrindis mat....eða pasta með pestó og kirsuberjatómötum á grein. Og papriku. Svo hjóluðum við ennþá meira um kvöldið til að komast í eitthvað tungumálapartý á snekkju...við hjóluðum í svona tvo klukkutíma en það var af því að Sigríður hafði trú á því að ég vissi hvert ég væri að fara. Hún fær prik fyrir það. Og við fáum flotta rassa...
Í dag átti að vera Spergildagurinn mikli því við ætluðum að sjóða spergil til átu, enda er spergiltímabilið í fullum gangi hér í þýskalandi. Við ákváðum þó meðan við sátum í tröppum að horfa á hjólabrettadúda með öðru auganu að breyta yfir í góðgerðardaginn mikla því við vorum svo þreyttar eftir að hafa eytt svona 2 tímum í að versla í fjögurra hæða Humana second hand búð (það er svona rauðakrossbúð). Spergildagurinn verður því á miðvikudaginn næsta nema ef vera skyldi að við rekumst á spergil sem við getum ekki látið framhjá okkur fara.
Á morgun er svo tónlistadagurinn. Þá ætla ég að kaupa gítar í pínulítilli holu hérna rétt hjá sem selur notuð hljóðfæri og síðan ætlum við í garðinn að spila tónlist og hlusta á tónlist og ef til vill blása sápukúlur. Um kvöldið ætlum við svo að finna okkur tónleika til að fara á.