Egill er búinn að fá nýja Muse diskinn.......og ég er að fara að hlusta á hann á eftir um leið og ég fæ mér pitsu. Ó hið ljúfa líf.
Og svo er ég búin að sjá hverjir eru með mér í bekk í Kvennaskólanum og það lítur bara vel út. Og svo eru alls ekkert 79 krakkar úr Hagaskóla í Kvennó, nei ónei kallinn minn það eru 35! Ekki það að ég hafi eitthvað trúað þeirri fáránlegu staðhæfingu........
Það er svosem ekkert til að kvarta yfir, ágætt að geta sofið við opinn glugga og með sæng á ný.
Ég keypti mér Showbiz í fríhöfninni (bara 1700 kall pælið í því) og ég er búin að vera að hlusta á hann og origin of symmetry til skiptis í allan dag og það er æðislegt. ég get ekki ákveðið hvor mér finnst betri.
Ég keypti líka nýja Foo Fighters diskinn. Ég hef ekkert hlustað á hann.
Ég vildi að ég væri að fara á Muse tónleika í staðinn fyrir Foo Fighters tónleika. Ég ætla að gera það að lífstakmarki mínu að fara á Muse tónleika. Eftir að ég hef náð því takmarki mun líf mitt ekki hafa neinn tilgang lengur. Nei kannski ekki alveg.