Ég er loksins komin aftur heim eftir tveggja vikna frí í sól og sumaryl. Það var mjög gaman, og jafnvel enn skemmtilegra að koma heim aftur :D
Dagurinn í dag jaðrar við að vera skrýtnasti dagur lífs míns. Í dag uppgötvaði ég nýtt áhugamál föður míns en það eru páfagaukar. Og í dag eignuðumst við tvo nýja fjölskyldumeðlimi en það eru ástargaukurinn Dilbert Jonhsson og nafnlaus sólpáfi. Pabbi kýs þó að kalla hann Jón Hrak (þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar til hans um að þetta sé líklega kvenkyns fuglsamkvæmt fuglabúðarkallinum Tjörva). Í byrjun ætluðum við bara að kaupa sólpáfann en svo sáum við okkur ekki annað fært en að kaupa Dilbert líka. Þeir eru nefnilega svo miklir vinir, að skilja þá að hefði verið grimmd og ekkert annað.
Verðinu á þessu öllusaman ætla ég svo að halda leyndu, allavega svona fyrst um sinn.
Já, ég hef stundum heyrt talað um að fjölskylda mín sé skrýtin.
Svo fór ég á leikinn í dag. Það var mjög gaman þrátt fyrir að ég hafi ekki séð rassgat í fyrri hálfleik og missti því af báðum mörkunum. Í seinni hálfleik stóð ég uppi á ruslatunnu með bjarka.