Þrettándinn......ég skil ekki hvað er málið með þrettándann. Ég hef aldrei tekið þátt í hátíðahöldum á þrettándann og satt að segja þá fara þau dálítið í taugarnar á mér. Af hverju í ósköpunum að fagna því að jólin séu búin? Og svo er verið að skjóta upp flugeldum í gríð og erg, en flugeldar eru bara ekki skemmtilegir nema á áramótunum og kannski menningarnótt.
Það eina jákvæða við þennan dag er að þá á afi minn afmæli. Og í dag varð hann hvorki meira né minna en áttræður. Var einmitt að koma úr veislu núna rétt í þessu, bara nánasta fjölskyldan, og það var bara mjög gaman :)