Jæææja....þá er ég loksins búin að breyta útilit á þessu bloggi mínu sem er búið að dvelja við grafarbakkann í þó nokkurn tíma sem mér þykir miður. Ég var alvag hætt að nenna að blogga og ég held að það hafi verið vegna þess að ég var komin með algjört ógeð á útliti síðunnar. Mér finnst þetta reyndar ekkert frábært en með hækkandi sól mun ég reyna að lífga eitthvað upp á þetta.
Á þessum síðustu tímum hefur afskaplega margt á daga mína drifið. Einhverra hluta vegna hef ég ekki séð mér fært að skrifa um neitt af því hér fyrir utan um ótímabært lát ferfætta vinar míns í sveitinni. Talandi um sveitina þá kíktu Ólafur og Dorrit í heimsókn þangað um daginn. Brúnó greyið hefur bara rétt misst af þeim.
Æi....ég nenni ekki að skrifa meira. Ég á við alvarlegt eirðarleysis og leiðivandamál að etja sem lýsir sér í því að mér leiðist jafnvel þó að ég sé að gera eitthvað og ég nenni yfirleitt ekki að gera sama hlutinn í lengri en tíu mínútur í einu.
Ég lofa engu en kannski skrifa ég meira innan skamms. Ég er svolítið bissí núna, ég og Steinvör erum að sjá um heilan Svía.