Þá er bara komið að því. Ekki kannski alveg, heldur á morgun klukkan 15:00. Þá hefst páskafríið. Fyrst þarf ég bara að læra undir og taka sögupróf sem er á morgun og klukka er núna tólf og ég er ekki næstum því búin að læra nóg. Maður verður nú að gerast djarfur svona endrum og eins aðeins til að krydda upp á tilveruna....
Á mánudagskvöldið tek ég svo stefnuna beint í norður (eða kannski meira norð-austur) með Flugfélagi Íslands. Það ætla ég sko aldeilis að skemmta mér vel.
Í allan dag er ég búin að vera að hugsa um hvað ég á í vændum eftir aðeins þrjá daga. Þá kemur páskafrí. Ég hef aldrei nokkurn tímann hlakkað svona mikið til að fá páskafrí. Kannski vegna þess að ég er að fara í sveitina. Svo er líka fermingin hans Ara á sunnudaginn og afmælisveisla Steinvarar og Signýjar. Og svo á Bjarki líka afmæli á sunnudaginn. Og svo er það páskaegggið á páskadag. Ég elska páskaegg. Það er bara allt að gerast....sem minnir mig á það að á sunnudaginn á ég líka eins árs bloggafmæli, því ég byrjaði einmitt að blogga á afmælisdaginn hans Bjarka. Gaman að því.