Það er alveg hreint með ólíkindum hvað ég get innbyrt mikið magn af súkkulaðián þess að finna til nokkurra óþæginda.....mér er hætt að standa á sama. Þetta jaðrar við ómennsku. En ég meina, það eru bara páskar einu sinni á ári og megintilgangur þeirra á þessum síðustu og verstu er einmitt sá að missa sig í súkkulaðinu. Súkkulaði er líka gott. Ég ætti í rauninni að vera þakklát fyrir að geta étið svona mikið af því án þess að verða óglatt.
Í gær gerði ég svolítið speisað. Ég pantaði mér flugmiða til London og Malaga. Það var gaman.