Í augnablikinu er ég stödd á Fálkagötunni að passa litlu frænkur mínar tvær, þær Hrafnhildi og Söru. Þær sitja nú sallarólegar í sófanum að horfa á jólastund með stubbunum eða eitthvað svoleiðis. Himnasending til annasamra foreldra þessir stubbar. Annars skil ég bara ekki hvað gerir það að verkum að krakkar geta horft á þetta aftur og aftur og aftur og aftur.
Annars hef ég voða lítið að segja. Var heima í allan dag að njóta þess að gera ekki neitt. Verð bara að segja að ég er fegin að það var rigning í dag. Annars hefði ég þurft ð vera að njóta veðursins. Ég er búin að gera of mikið af því síðustu vikuna. Svo er hún svo góð fyrir blessuð blómin.
Það er gaman að vera í sumarfríi. Ég var að koma úr sundi. Hlustaði meðal annars á áhugaverðar pólitískar umræður í heita pottinum. Langaði mjög að skjóta inn einu og einu orði en mér fannst það ekki við hæfi. Það er ein af mínum helstu skemmtunum að hlusta á samræður fólks í heita pottinum.
Nú er Gugga byrjuð að vinna með mér. Ég hef reyndar ekki notið góðs af því enn þar sem ég er alltaf látin vinna ein úti í horni >:| Það er samt gaman að hafa hana í hléunum. Í dag fórum við t.d. í húsdýragarðinn að skoða tvo nýfædda kópa. Það er nefnilega þannig að við í Grasagarðinum fáum að fara FRÍTT í Fjölskyldu og húsdýragarðinn. Hversu frábært er það?
Helgin mín var skemmtileg. Þá hélt ég upp á afmælið mitt. Á sunnudaginn kl. 3 í glampandi sól og steikjandi hita í bakgarðinum mínum og bauð ég upp á kanadíska heimatilbúna hamborgara. Og ís. Það myndaðist mjög skemmtileg sumarstemmning þar sem við hoppuðum um í garðinum og þeystumst um á götunni á ýmist einhjólum eða hjólabretti.
Jæja þá er nóg komið í bili og verið dugleg að kommenta fólk!