Alveg stórskemmtilegur dagur, dagurinn í gær. Og kvöldið og hluti af nóttinni. Hinn hlutann var ég bara sofandi. Það var reyndar gaman líka, hef ekki gert mikið af því síðustu vikurnar.
Hann Egill var nefnilega að útskrifast og allur dagurinn fór bara í það eiginlega. Smá stress í gangi þegar við vorum búin að bjóða til veislu klukkan fimm og klukkan hálf fimm vorum við ennþá á athöfninni í Háskólabíó og ennþá hlutar hússins ólagaðirtil. En það reddaðist og veislan var bara hin ágætasta (munið, ágætt er best).
Athöfnin var fín, ræður og svona, en ég og Bjarki fundum okkur skemmtilegan leik til dundurs sem gekk út á að reyna að giska á hvað næsti maður sem var að taka við skírteininu sínu hét áður en það var lesið upp. Það var mjög gaman og heppnaðist alveg nokkrum sinnum.
Svo komu vinir Egils og líka vinkonur mínar um kvöldið til að samfagna.
En núna eftir svona hálftíma verður stefnan tekin norður í Eyjafjörð að fagna 70 ára afmæli ömmu minnar með enn einni veislunni sem verður örugglega stuð. En ekki örvænta, við komum heim aftur á morgun.
Lag gærkvöldsins:
Mary's boy child í flutningi eins og hann er á Pottþétt Jól (fyndnasta jólalag sem ég hef nokkurn tíman heyrt og einnig mjög skemmtilegt).
Eru ekki allir að fylgjast með jóladagatalinu? Þetta er laaang skemmtilegasta jóladagatalið, enda vekur það upp skemmtilegar æskuminningar síðan á fyrri hluta tíunda áratugarins. Ég skil samt ekki afhverju sjónvarpið sýnir ekki smá lit og býr til nýtt jóladagatal og gerir það almennilega í staðinn fyrir að vera alltaf að endursýna. Þó það sé nú skemmtilegt að vissu leyti, bara dálítið "ódýrt".
Annars var ég núna rétt í þessu að missa af því vegna þess að ég hélt að klukkan væri 6. Og svo er það ekki einu sinni endursýnt!