Það er gaman að geyma allt þangað til á allra síðustu stundu. T.d. að pakka niður. Þá er svo spennandi að sjá hvort maður hefur gleymt einhverju þegar upp í flugvélina eða á áfangastað er komið. Þess vegna byrja ég aldrei að pakka niður fyrr en um hálftíma fyrir brottför. Líka af því að mér finnst leiðinlegt að pakka.
En já...ég veit hvað ég verð að gera næsta vetur, það er ágætt. Þó það sé að mörgu leyti gaman að lifa í óvissunni.
En þetta er semsagt svona kveðjufærsla. Þið munuð reyndar að öllum líkindum heyra eitthvað frá mér hér þennan rúma mánuð sem ég verð í burtu. Hvaðan eða hvenær...ég veit það ekki...