Andlegt ástand mitt er ekki upp á marga fiska akkúrat núna. Og það sem verra er, ég lánaði Filippus í u.þ.b. klukkutíma því hann er svo multi-talented og hefur þann eiginleika að geta verið USB lykill. Svo hann er ekki hér til að lina þjáningar mínar. Eða ok, ég er ekki beint að þjást, ekki hafa neinar áhyggjur.Líkamlegt ástand mitt er reyndar ekkert skárra heldur. Allt eru þetta afleiðingar nýliðinnar helgar sem var samt sem áður alveg stórskemmtileg =D
Áður er ég byrja á glærusjói um endurreisnarlistamanninn Giotto di Bondone ætla ég að gera tilraun til að öðlast hugarró og setja saman skemmtilega listann, lista með tíu lögum sem mér finnst alveg ótrúlega skemmtileg. Þetta er semsagt framhald af fallega listanum sem ég birti fyrir akkúrat viku. Framhald á þessari listasmíð minni mun svo að öllum líkindum verða að viku liðinni.
1. In the Aeroplane over the Sea - Neutral Milk Hotel 2. Bottle up and Explode - Elliott Smith 3. Við Birkiland - Megas 4. Relative Ways - And You Will Know Us by the Trail of Dead 5. Rebellion (Lies) - Arcade Fire 6. Arpeggiator - Ensími 7. Nancy Boy - Placebo 8. The King of Carrot Flowers - Neutral Milk Hotel 9. David Bowie - Starman 10. Dungen - Du E for Fin for Mig