Jeijj......ég var að vinna mér inn 1500 kall. Þá á ég hvorki meira né minna en 2000 kr. sem eiga að duga fyrir jólagjöfum handa öllum sem eiga slíka skilið frá mér, uppihaldi, böllum og annarskonar skemmtunum í desember mánuði. Já svona er að vera fátækur námsmaður en ekki kvarta ég. Þetta er nú bara lífið.
Ég er reyndar að hugsa um að sleppa öllum jólaböllum þetta árið og skella mér eingöngu í fyrirpartý. Ég hef nefnilega heyrt á það minnst að jólaball Kvennó verði haldið með MS og ég er nú bara alls ekki að treysta mér á ball með þeim skóla. Ég veit ekki betur en að það hafi verið fyrir utan skemmtistað á MS balli þar sem einhver aumingjans piltur var stunginn með hnífi. Ég geri mér svo sem alveg grein fyrir því að ég þarf ekki að óttast neinar hnífstungur í minn garð þar sem ég bý við þann kost að vera kvenkyns. Ég held bara að ég eigi ekki eftir að geta skemmt mér eins og vera ber af ótta við að fá yfir mig jahh t.d. blóðslettur. Eða að troðast undir í og deyja í röðinni. Það munaði nú minnstu þegar ég stóð umkringd stórum, fullum drengjum otandi sígarettum í allar áttir að bíða eftir því að komast á MR ball. Og þeir eiga víst að heita prúðmenni þarna í Hinum lærða skóla.
Ég ætlaði reyndar að segja ykkur aðeins frá því hvernig ég vann mér inn þennan 1500 kall en maður er bara kominn út í
einhverja allt aðra sálma áður en maður veit af.
Nú þannig er mál með vexti að mér bauðst það hlutverk að hella víni í glös og ganga um með bakka á einhverri fræðimannasamkomu í Reykjavíkur Akademíunni. Steinvör og Sigga komu með mér og svo var Helga bekkjarsystir mín þar líka. Svo var ekki merkari maður en forsetinn sjálfur Ólafur Ragnar Grímsson mættur á svæðið. En hann vildi hvorki áfengi né Egils Kristal. Hann beinlínis fúlsaði við því.
Þetta er þá í annað skiptið sem ég hef verið að hella víni í glös á samkomum sem eru ekki ómerkari en svo að forsetinn lætur sjá sig. Og í fyrra skiptið veifaði ég honum eins og eflaust margir hafa heyrt. Já, mér verður hreint ekki fisjað saman.