Hmmm...ég var að spá. Hvernig veit maður hverju maður hefur mestan áhuga á og hvernig veit maður hvort maður hefur í raun og veru áhuga á því sem maður telur sig hafa mestan áhuga á en ekki bara einhvern yfirborðkenndan áhuga á því af því að maður heldur að maður hafi áhuga á því af því það væri svo sniðugt að kunna hitt og þetta...af því...af því...ég veit ekki. Eða...kannski hefur maður í rauninni ekki áhuga á neinu heldur bara smá áhuga á öllu og eyðir þess vegna lífinu í að prófa allt saman og fattar svo að manni fannst ekkert af því neitt sérstaklega gaman en samt alveg ágætt. Hvað þá? Ha?
Er ég að ætlast til of mikils af ykkur þegar ég bið ykkur um að svara mér?