Ég væri til í að búa í fjallakofa í óbyggðum Íslands sem væri 6 fermetrar að stærð með engu nema rúmi og hlóðum og lampa og það tæki a.m.k. fjóra tíma að fara fótgangandi í næsta kaupstað og það væri ekki hægt að komast þangað á bíl. Ég veit um einn svoleiðis stað.
En nú ætla ég að fá mér spaggedí með tómatsósu a la Bjarki því ég, Auður Viðarsdóttir, hef lært að meta þann munað og lostæti sem tómatsósa er.