Þó að þeir hitti einstöku sinnum í mark með góðum þætti eða mynd (aðallega þó hjá eldri kynslóðinni) er ekki þar með sagt að fólk nenni að horfa á það aftur að afar, afar litlum tíma liðnum (nema kannski þeir allra gleymnustu), hvað þá þegar verið er að sýna eitthvað í þriðja skiptið! Og svo er ekki minnst einu orði á þetta sé endursýnt efni. Lúaleg vinnubrögð og ekkert annað. Og svo er maður neyddur til að borga fyrir þetta. Tissss.......
Annars hefur það borið til tíðinda hér á bæ að ég var að skipta um e-mail adressu mér til virðingarauka. Hið nýja netfang er: audurvid@hotmail.com. Endilega addið mér á msnið ykkar. Samt ekki ef ég þekki ykkur ekki neitt. Það er svona frekar asnalegt.