Um daginn átti ég samtal við bróður minn Egil um einhverja manneskju og varð mér á að kalla manneskjuna lúða. Þá fór Egill að ásaka mig um að ég væri vond manneskja og ég veit ekki hvað og hvað en málið er að þegar ég kalla fólk lúða meina ég það alls ekki sem slæman hlut. Þvert á móti, sjálf er ég mikill lúði og hef alltaf verið og er ekki annað en stolt af því. Í mínum augum er það að vera lúði meira svona lífstíll eins og t.d. það að vera hipphoppari heldur en eitthvað niðrandi viðurnefni. Og þar að auki eru lúðar yfirleitt miklu skemmtilegra fólk heldur en fólk sem er svo mikið að reyna að vera kúl að það þorir ekki að gera hluti sem því finnst skemmtilegt.
Ég var tildæmis afskaplega mikill lúði þegar ég var í 8.-10. bekk (og er það enn) og ég get ekki annað sagt en að ég sé mjög fegin því. Það var í rauninni rosalega gaman að vera lúði og hafa aldrei þurft að pæla í því að það sem ég var að gera væri ekki nógu kúl. Og ef ég hefði ekki verið lúði þyrfti ég kannski að horfast í augu við þá staðreynd að hafa stundað rólófyllerí sem felst í því að hanga út á róló ekkert endilega það seint á kvöldin að drekka landa og deyja síðan, jafnvel áður en disneymyndin byrjar í sjónvarpinu kl. hálf níu.
Ég er ekkert að segja að fólk sem stundaði rólófyllerí sé eitthvað verra en annað fólk, ég held bara að það hafi ekkert verið sérstaklega gaman. Kannski að þeim sem stunduðu það hafi fundist það gaman en ég er allavega fegin að hafa eytt föstudagskvöldunum mínum í eitthvað annað.
Það sem ég er að reyna að segja er að þegar ég kalla fólk lúða er ég ekki að gera að því gys eða að reyna að niðurlægja það eða segja að að sé eitthvað óæðra mér, ég er einfaldlega að skilgreina manneskjuna sem persónu.
Endilega tjáið skoðanir ykkar á þessu málefni hér í kommentakerfinu mínu.
Seinna mun ég kannski koma inná hver munurinn á lúða og nörda er í mínum augum (að vera nördi er heldur alls ekkert slæmur hlutur) en ég nenni því ekki núna.
Já og meðan ég man þá var frændi minn Ari Júlíusað fá sér blogg en hann er í 8. bekk í Kópavogsskóla að ég held þar sem allir nemendurnir sitja á skrifborðsstólum.
Bankarán er bara nánast orðið daglegt brauð. Eitt slíkt var einmitt framið hérna áðan í bankaútibúinu á Vesturgötu, bara rétt um það leyti sem við vinkonurnar vorum að rölta heim úr skólanum. Það keyrðu held ég einir fimm lögreglubílar fram hjá okkur.
Þetta er víst annað bankaránið sem er framið í einmitt þessu útibúi. Síðast var það gert í desember 1995 og hefur lögreglunni ekki enn tekist að upplýsa það mál............ Ég er í alvörunni að spá í leggja þetta fyrir mig og ræna bara banka næst þegar mig vantar t.d. pening í bíó eða eitthvað.