Ég var í mjög skemmtilegu og að ég tali nú ekki um bragðgóðu afmæli hjá henni Lindu bekkjarsystur minni, sem býr á Kjalarnesi, í gærkvöldi. Það var rosa stuð. Átti lengi í mjög skemmtilegum samræðum um tannþráð meðal annars. Og svo hlustaði ég á Disney lagið Under The Sea sem rauði humarinn í Litlu hafmeyjunni syngur. Eða var það krabbi? Það er allavega einkar skemmtilegt lag og nú langar mig rosa mikið að horfa á Litlu hafmeyjuna.
Já og eins og lesendur kannast við þá nældi ég mér í miða á Pixies. Ég hlakka alveg yfirgengilega mikið til.
Núna er aðeins tæp vika í mitt langþráða páskafrí.
Lag dagsins:
Under The Sea - rauði humarinn (krabbinn?) í Litlu hafmeyjunni.
Núna er ég að hlusta á Pixies. Ég er ekki búin að næla mér í miða á tónleikana. Nei, og ég sé heldur ekki fram á að ég muni verða þeirrar lukku aðnjótandi. Mér finnst þetta alveg glatað fyrirkomulag að Kraftwerk fólkið fái alla miðana. Nei, ég er bara alls ekki sátt. Mig langar bara ekkert á Kraftwerk tónleikana og ég þekki engan sem er að fara á þá og ég hef bara andskotans ekkert efni á því að kaupa mér miða á bæði Pixies og Kraftwerk. Ég gæti örugglega heldur ekkert selt hann því örugglega helmingurinn af fólkinu ætlar að gera einmitt það. Nei, ég er bara ekki sátt, mér finnst þetta bara alvaræegt mannréttindabrot gagnvart þeim sem eiga ekki mikinn pening og hafa ekki gaman af tölvupoppi >:|
En svona út í aðra og gleðilegri sálma farið þá ætla ég að skella mér á eitt undankvöld Músíktilrauna í kvöld. Það verður eflaust gaman. Og talandi um gamanlegheit þá eru bara ellefu dagar í páskafrí. Jibbý!