Loksins er kominn föstudagur. Ég elska föstudaga. Helgin mín býður reyndar ekki upp á annað en lærdóm og aftur lærdóm þar sem ég hef látið hann sitja á hakanum síðustu daga og vikur. Eiginlega bara alveg síðan skólinn byrjaði eftir jólfríið. Sem er ekki gott.
Í gærkvöldi skellti ég mér ásamt fríðu föruneyti á grímuball Kvennaskólans sem var haldið úti á Nesi. Fyrst hitti ég bekkjarsystkini mín í fyrirpartýi sem var einnig úti á Nesi hjá honum Jóni. Það var rosa mikið stuð en frekar stutt. Kannski af því að ég kom svo seint eða eitthvað........
Svo var ballið sjálft líka mjög skemmtilegt. Held bara eitt af þeim skemmtilegustu í vetur. Samt sögðu kennararnir í dag að það hefði verið afskaplega mikil ölvun meðal nemenda, meiri en venjulega og fólk ælandi og deyjandi úti um allt en ég verð nú bara að viðurkenna að ég tók ekki eftir neinu slíku. Kannski vegna þess að ég tek yfirleitt ekki eftir neinu sem er að gerast í kringum mig.
Þá er netið okkar gamla góða komið aftur í lag. Guði sé lof fyrir það, það er meira en að segja það að vera internetslaus í heila viku. Já, ég viðurkenni það fúslega. Það var erfitt. Þessi internetslausa vika hefur þrátt fyrir það verið frekar skemmtileg og að ég held viðburðarríkari en öll haustönnin. Það gerðist reyndar ekkert rosalega mikið merkilegt, málið er bara að það gerðist ekki neitt alla haustönnina. Ég nenni nú ekki alveg að segja frá öllu svo ég ætla bara að stikla á stóru.
Ég er komin með tvær vinnur. Eina sem Sigga útvegaði mér þar sem ég á að hafa auga með 6-9 ára krökkum í Skólaskjóli Mýrarhúsaskóla. Ég er búin að fara tvisvar og mér líst mjög vel á það, það er jú alltaf gaman að hafa samskipti við börn. Og þetta eru mjög góð og skemmtileg börn þó að ein kona sem vinnur þarna hafi sagt að þau geri hvað sem er til að brjóta reglur. Það er nú bara alls ekki rétt. Ég man ekki eftir því þegar ég var krakki að hafa lagt mig fram við að brjóta hverja einustu reglu, ég vildi nú bara leika mér í friði. Fullorðið fólk er stundum svo skrýtið.
Svo er ég að bera út Fréttablaðið á virkum dögum ásamt henni móður minni sem er jú bara fínt á sinn hátt.
Á mánudaginn fékk snillingurinn hann pápi minn viðurkenningu Hagþenkis sem er eitthvað fræðifélag fyrir vel unnin störf í þágu fræðimennsku eða eitthvað bla bla bla.......Við fórum öll á svaka fína verðlaunaafhendingu þar sem voru snittur og vín. Hann fékk hellings pening og var meira að segja í kastljósinu og tíufréttunum. Og jújú, það sást glitta í engan annan en mig. Sá það einhver?
Áðan skrapp ég á ræðukeppni í MR eftir að hafa horft á Opruh Winfrey þátt í sögutíma (við erum með snilldar afleysingakennara í sögu um þessar mundir) þar sem Lena, Hildur, Halla og Guðrún Sóley voru að keppa fyrir hönd bekkjar síns. Ég missti af fyrri helmingnum en þær stóðu sig með stakri prýði og rústuðu þessu að sjálfsögðu.
Á morgun er svo grímuball Kvennaskólans og er ég í nokkuð góðu stuði fyrir það. Ég þarf bara fyrst að finna mér búning.
Og svo byrjar EM í handbolta á morgun kl. 19:30! Jeijj.....