Ég er búin að finna mér nýtt lífstíðarmarkmið. Ég varð eiginlega að gera það, ég bjóst ekki við áð ná hinu lífstíðarmarkmiðinu mínu svona fljótt. Já, ég ætla að verða heimsins besti gítarleikari. Það ætti að duga nógu lengi.
Ég biðst afsökunar á bloggleysi undanfarinna daga. Bloggleysið á sér þó náttúrulegar skýringar, tölvan hefur ekki verið viðstödd síðustu tvo daga eða svo. Ég hef því verið internetslaus allan þennan tíma. Og það kemur mér jafnvel á óvart hversu vel ég hef höndlað það. Engin fráhvarfseinkenni.....