Það er helst í fréttum að ég, Auður Viðarsdóttir, var alein heima frá þriðjudagskvöldi til og með föstudagsmorguns þegar ég skellti mér upp í flugvél og flaug norður á bóginn í sveitina mína yndislegu. Ég veit að sumum finnst þetta líklega ekki í frásögur færandi en þannig er mál með vexti að ég er ALDREI ein heima nema ef vera skyldi klukkutíma hér og hálftíma þar. Svona er að eiga fjölskyldu með fullt af fólki í. Við erum að tala um heilar þrjár nætur...og hér er það sem ég afrekaði:
-braut saman þvott -leigði spólu með stelpunum -vaknaði á réttum tíma alla morgnana (reyndar hringdu mamma og pabbi í mig bara til að vera viss en þá var ég alltaf vöknuð) -þreif klósettið niðri hátt og lágt -lagaði til í tveimur þriðju af húsinu og ryksugaði (klukkan eitt um nótt) -hjólaði tvisvar sinnum út í Bónus og keypti tvo troðfulla innkaupapoka í bæði skiptin sem ég rogaðist síðan með inn í bæði Hagkaup og Krónuna til að kaupa það sem Bónus átti ekki til (mér leið svolítið kjánalega) -keypti meðal annars þrjá lauka á tvær krónur og velti mikið fyrir mér hvað hefði gerst ef ég hefða bara þurft einn lauk margir eru eflaust á þessum tímapunkti að velta fyrir sér hvað ég gerði svo við allan þennan mat -hélt dýrindis matarboð fyrir vinkonur mínar alveg sjálf (fyrir utan smá hjálp frá ömmu) þar sem ég bauð upp á geðveikt ágætan kjúklingarétt (það fannst mér allavega) með hrísgrjónum, salati og hvítlauksbrauði ásamt gosi og síðan yndislega eplaköku frá ömmu, ís, ávexti og nammi í eftirrétt. -lagaði til eftir matarboðið til kl. 3, vaknaði svo klukkan 6 og fór í vinnuna.
Það staðfestist hér með að ég hef náð undirstöðuatriðunum varðandi það hvernig á að vera góð húsmóðir, jafnvel örvæntingarfull, svei mér þá... Sannfæringin mín um að ég kynni ekki að elda er líka fokin út í veður og vind. Þið hefðuð átt að sjá mig þarna á fimmtudaginn, hvernig ég hentist um í eldhúsinu á hraða ljóssins en þó settlega, sauð hrísgrjón, steikti kjúkling, hitaði brauð, bjó til salat og lagaði sósu, smakkaði hér, smakkaði þar...og allt þetta á sama tíma!
Jæja, nóg komið af sjálfshóli í bili.
Áðan skrapp ég í Kringluna og keypti mér bikini...bara si svona! Þetta sem er búið að valda mér hugarangri í allt sumar. Nú er ég loksins komin í hóp Guggu, einu skrefi nær Spánarferðinni og eiginlega tveimur þar sem ég fékk nýja vegabréfið mitt í gær :D