Ég á svolítið erfitt með að einbeita mér núna. Ekki það að ég þurfi að vera að einbeita mér að einhverju þar sem ég er í gati til 13:20.
Ástæðan er þessi: Í tölvunni á móti mér sitja þrír gaurar sem eru að tala um einhvern tölvuleik og eru búnir að vera að því í svona hálftíma staaaanslaust. Fyrir mér eru orðin sem þeir segja (þ.e.a.s. þau örfáu orð sem ég skil) engan veginn í samhengi við neitt. Orðin healing power hafa allavega komið oft fyrir. Og RFC....og onyxia....eða eitthvað....jájájá. Svo tala þeir svo hratt og ekki bætir úr skák að einn þeirra er með í vörinni sem gerir þetta ennþá kjánalegra. Og það er akkúrat sá sem er í beinni sjónlínu við mig. Ég bara get ekki tekið fólk sem er með í vörinni alvarlega. það er það kjánalegasta sem ég veit. Ég held að hann sé farinn að taka eftir því að ég sé að horfa svolítið mikið á hann....
Jess, þeir eru að fara í tíma.
Friður.
Æ, nú hef ég ekkert að gera.
Ég fór á Hætta-tónleikana á laugardaginn. Mér fannst alveg ótrúlega gaman. Að fara á tónleika er líka það skemmtilegasta sem ég geri, sérstaklega góða tónleika!
En já, ég er farin að gera.....eitthvað.......kannski fá mér að éta. Bless.