Fyrstu tveir dagar páskafríisins míns hafa verið afar kærkomnir og vel heppnaðir. Langþráð sumarbústaðarferð með stelpunum varð loks að veruleika á föstudaginn, við skelltum okkur í sumarhúsið hennar Lenu og co. Þar var mikið fjör og mikið gaman, að sjálfsögðu. Mikið étið, mikið dansað, mikið verið þreyttur inni á milli en mikið vakað þrátt fyrir það og þeir hörðustu skelltu sér í pottinn kl. hálf fimm um nóttina. Takk fyrir mig Lena og þið hinar, þetta var frábært :)
Vikan sem leið er búin að vera frekar kreisí. Miðvikudagsnóttina prófaði ég dálítið nýtt. Eftir fullkomlega svefnlausa nótt (við erum að tala um að ég lagðist ekki einu sinni niður) á skrifstofunni hans Ingólfs í JL-húsinu ásamt valinkunnum ritnefndarstúlkum skottaðist ég í skólann í enskupróf og var þar í hressleika mínum til kl. hálf fimm. Í stærðfræðitíma prófaði ég að sofa í tíma í fyrsta skiptið. Það kom mér á óvart hversu notalegt það var. Svo var það vinnan í Melabúðinni frá 6-9 og loksins heim.......að læra undir þýskupróf. Þetta var á heildina litið afar áhugaverð lífsreynsla. Hinar nætur vikunnar voru kannski ekki alveg jafn öfgafullar, við erum þá að tala um svona 4-6 tíma svefn. Gaman að því. Núna er elsku paskafríið komið og í dag er ég ekki búin að gera neitt nema að hvíla mig. Það er mjög skrýtið.