Eirðarleysi mitt er að gera út af við mig. Ég veit ekki hvað ég á að gera...hvað á ég að gera? Jú...ég ætla að labba niður í bæ og fara í Skífuna. Svo ætla ég að fara að bögga fólk.
Ég á í smá vandræðum...á ég að sjá eftir að hafa tekið þá ákvörðun á Hróarskeldu að fara á Roger Waters frekar en Animal Collective...eða...ekki? Við skulum hafa í huga að tónleikarnir voru á nákvæmlega sama tíma svo að reyna að ná hluta af báðum hefði verið klúður aldarinnar.
Mig langar bara svo að vita það.
Roger Waters var nú ykkur að segja alveg magnaður. Ég var alveg dáleidd í tvo tíma ásamt frábæru fólki. Það var bara svo yndisleg stemmning og svo var ég líka í pyttinum...eftir þrotlausar tilraunir Egils til að fá okkur með sér í pyttröðina...hann á þakkir skilið. Þvílík hamingja sem braust út þegar ég og Hrafn loksins came to our senses og viðurkenndum að Egill hlyti að hafa rétt fyrir sér...eins og alltaf hehe...komumst í pyttinn á nótæm og hittum Egil og Jóa. Gleðistund.
Nei, satt að segja sé ég ekki eftir að hafa misst af Animal Collective. Þó að ég hafi heyrt af mörgum að þeir hafi verið að gera mjöhög góða hluti.
Ég er búin að vera að hlusta á Pink Floyd í allan dag, vekur upp góðar minningar og jafnvel gæsahúð við og við. Gaman. Sérstaklega Shine On You Crazy Diamond, Comfortably Numb og Echoes.
Svo er það bara innipúkinn á föstudaginn ef það verður ekki uppselt þegar ég loksins man eftir að kaupa miða.
Það er bara best að vera komin heim. Ég bjóst við að það myndi vera gaman en ekki svona ógeðslega frábært. Það er af því að ég á bestu vinkonur í heimi :) Þær eru reyndar ALLAR að yfirgefa mig í tvær vikur en hvað get ég svosem sagt...ég flúði land í fimm vikur. Ég verð bara að nota þessar tvær vikur í andlega íhugun og eitthvað svoleiðis gáfulegt. Reyndar fer Sigga ekki alveg strax, það er smá huggun.
Jæja...eins gott að þið skemmtið ykkur vel og kannski bjallið í mig við eitthvað gott tækifæri.
Mike Skinner er snillingur. Ég elska Dry Your Eyes. Það er samt eiginlega aðeins of sorglegt.