Komiði blessuð og sæl öll á þessum fagra sumardegi.
Í gær bakaði litla systir mín Gunnhildur bestu súkkulaðiköku sem ég hef á ævi minni smakkað. Núna er hún hins vegar farin í sveitina, Gunnhildur það er, og kakan er að verða búin. Ég neyðist því til að baka aðra svoleiðis um helgina. Jafnvel tvær...
Annars væri ég alveg til í að vera í sveitinni líka núna. Í fyrsta lagi er betra veður þar og í öðru lagi eru hlutirnir ekki jafn flóknir þar svona frá degi til dags. Svo eru líka amma og afi þar og stutt frá er Akureyri þar sem frænka mín heldur sig. Svo bakar hún amma mín í sveitinni líka afar góðar súkkulaðikökur eða öllu heldur besta krem á súkkulaðiköku í öllum heiminum. Það voru góðir dagar þegar amma ákvað að baka súkkulaðiköku og ég fékk að hjálpa til með kremið og þrífa pottinn eftir á. Núna hljóma ég eins og gamalmenni.
Nú, það hefur væntanlega ekki farið fram hjá mörgum að í dag er föstudagur. Það er mikið gleðiefni af því að helgin mín hljómar mjög skemmtilega. Svo eru aðeins tvær vikur og einn dagur þangað til ég held út í óvissuna.
Næst er hins vegar á dagskrá að hjóla út í Melabúð og kaupa Precision Burner orkudrykk og hjóla með til Egils í bæjarvinnuna.