Ég steig inn um dyrnar ad mínu yndislega húsi um klukkan 4 í gær. Á móti mér tóku nýjustu fjölskyldumeðlimirnir, tveir litlir kettlingar. Þeir eru töff. Það er gaman að vera komin heim, enda var ég búin að hlakka ógeðslega mikið til eins og Gugga getur vitnað um en ég lét eins og fimm ára gamalt barn í flugvélinni. Flugferðin var frekar boring þar sem við höfðum ekkert að lesa eða neitt okkur til skemmtunar en við fundum upp hina og þessa leiki svo það var nú allt í lagi í lokin.
Síðustu þrjá dagana vorum við hjá Camille vinkonu okkar sem var bara yndislegt, það er ekki hægt að lýsa því öðruvísi. Enda vorum við búnar að lenda í ýmsu þessa fjóra daga sem við vorum í Brighton "hjá Beccu". Svo dvölin hjá Camille var bara himnaríki miðað við það. Við fengum alltaf kvöldmat og ís eða ber í eftirmat og morgunmat og herbergi með mjúku rúmi og bara ALLT. Svo var húsið hennar alveg eins og klippt út úr breskri kvikmynd með risastórum garði sem var með trampólíni :) Og svo á hún hund sem heitir Phoebe eftir Phoebe í Friends. Og mamma hennar og pabbi voru svo mikil krútt, mjög áhugasöm um Ísland og við fengum þvílíkar spurningabombur sem var frekar erfitt að svara svona jafnóðum...ég held við höfum alveg óvart logið hinu og þessu að þeim svo við ætlum að senda þeim bók um Ísland með öllum staðreyndunum bara svona til að leiðrétta allan misskilning, til öryggis...
En Camille sýndi okkur eiginlega ALLA London á tveimur dögum. Við sáum ALLTSAMAN og það í 37 stiga hita og sól. Við vorum svo dauðar úr þreytu þegar við komum heim á kvöldin að við plöntuðum okkur bara í sófann eftir mat og horfðum á DVD. Hún á nefnilega ansi gott DVD safn. Eitt kvöldið fórum við reyndar út í garð að hoppa á trampólíninu. Það var GAMAN.
Jebb, Woldingham og Camille var fullkominn endir á ferðalaginu mínu =)