Í dag fór ég á fyrirlestur/tónleika í Reykjavíkur Akademíunni með dönskum náunga sem var að fræða áheyrendur um rússnesk byltingasöngvaskáld og spila og syngja sýnishorn á gítarinn sinn. Feitt menningarprik í kladdann minn.
Það var gaman.
Þann 4. apríl síðastliðin voru fimm ár liðin síðan ég hóf glæstan og rósum prýddan bloggferil minn. FIMM ÁR!!!
Fyrir ykkur sem bíðið spennt eftir næstu færslu í "Bilað dót heima hjá mér" seríunni þá er þess ekki langt að bíða.