Ég veit að ormar eru próteinríkir og góðir fyrir hárið en ég myndi samt aldrei borða einn slíkan að yfirlögðu ráði. Sérstaklega ekki ef hann er grænn og iðandi með svartan haus.
Ég er í miklum bobba. Mig langar að skipta yfir á félagsfræðibraut á næsta ári en ég vil eiginlega ekki skipta um bekk. Síðustu daga hef ég smám saman verið að gera mér grein fyrir því að það hefði verið mun sniðugra fyrir mig að fara á félagsfræðibraut. Mér finnst raungreinar nefnilega ekkert rosalega skemmtilegar.
Mér finnst félagsfræði miklu skemmtilegri.
Guð minn góður! Fyrir örfaáum mínútum síðan varð ég fyrir mesta áfalli lífs míns hingað til. ÞAÐ VAR ORMUR Í PLÓMUNNI MINNI. GRÆNN ormur. Úfffff......ég held ég þurfi að gubba.
Í gær var busadagur í Kvennó og um kvöldið var svo busaball á Nasa. Það var mjög gaman að vera busaður þrátt fyrir að vera á svörtum lista. Ég þurfti ekki að gera neitt aukalega nema borða smjör og kanil. Ég get ekki sagt að það hafi verið gott á bragðið...........
Og svo var geðveikt gaman á ballinu en ég get ekki sagt það sama um fyrirpartý bekksins míns sem var heldur súrt. Ég vona að næsta partý verði skemmtilegra.........enda ætla ég bara að redda því og taka með mér gítarinn minn og söngbók, gítarstemmning er alltaf skemmtileg.