Það er verið að klippa staurfótinn af hvutta í þessum skrifuðu orðum. Eða sko bara staurinn, ekki allan fótinn. Ég hef kosið að vera ekki viðstödd þá athöfn. Ég held að það sem er undir sé ekki fögur sjón eftir reynslu mína af beinbrotum og langvarandi umbúðum. Ég hef nú reyndar bara litlaputtabrotnað en nógu slæmt var það nú. Jæja, nóg um viðbjóðslegheit.
Þetta er það sem ég hefði átt að gera í dag: -lesa Sjálfstætt fólk -lesa Íslandsklukkuna -gera uppeldisfræðiverkefni -læra fyrir glósupróf í ensku -gera sex blaðsíðna langa dagbók í ensku -ofl. ofl. ofl....
Þetta er það sem ég gerði í dag: -náði í einn bækling fyrir uppeldisfræðiverkefnið -gerði nokkrar sudokuþrautir á netinu (æi andskotans, nú langar mig að fara að gera það aftur) -bjó mér til ljúffengt kjúklingasalat og borðaði það -horfði á Americas next top model -bloggaði! -reyndi að kenna hundinum að snúa sér í hringi eftir skipun -ofl. ofl. ofl....
Heyriði hundurinn var að koma upp, það er víst bara allt í lagi með hann! Hallelúja...