MÉR FINNST BOLLUDAGSBOLLUR VONDAR! VONDAR SEGI ÉG!!!
nr. 1: þær sjálfar eru þurrar og vondar á bragðið (bæði vatnsdeigs og hinsegin) nr. 2: súkkulaðið sem er sett ofan á þær er oftast ógeðslegt nr. 3: það er oftast rjómi á milli þeirra og rjómi bragðast eins og smjörlíki sem er vont nr. 4: stundum er sulta og sulta er ekki góð nema ofan á ristað brauð í hóflegu magni nr. 4: vanillukrem er skárra en þá get ég nú alveg eins bara smurt vanillukremi á heimilisbrauð, það yrði líklega betra nr. 5: þar sem bollurnar eru flatar að innan (allavega þessar venjulegu) þá er ekki hægt að bíta í þær án þess að það sem er á milli kremjist úr og yfir mann allan svo maður endar alltaf á því að borða þessar þurru bollur því sem næst eintómar og sleikja síðan kremið eða rjómann af puttunum
Mér finnst að við ættum að hætta að ljúga að okkur sjálfum og búa til vondar bollur á bolludaginn bara til að eltast við eitthvað dagaheiti...fyrir svo utan það að ein, EIN bolla í bakaríinu kosta 255 krónur!
Af hverju getum við ekki skírt þennan dag eftir einhverju sem er gott? T.d. ís? Já eða súkkulaði? Eða bæði....hér eftir ætla ég að halda upp á bolludaginn sem ís- og súkkulaðidag og borða ís og súkkulaði allan daginn meðan hinir pína í sig vondar bollur og verða allir klístraðir og skítugir. Múhahaha. *
* Ég er í dálítið vondu skapi í dag vegna þess að ég eyddi hálfum deginum inni í illa loftræstu tölvuherbergi að reyna að prenta út nokkrar ómerkilegar myndir sem ég þurfti að setja í skissubókina mína. Allt sem ég fullyrti hér að ofan er samt sem áður satt.