Ykkur langar kannski að vita af hvaða tilefni ég er að raula þennan hressilega lagstúf?
Jú, það er vegna þess að í kvöld er 3. í Airwaves. Í gær var 2. í Airwaves og 1. var í fyrradag. Ég er semsagt stödd mitt í Airwaves og þá getur maður ekki annað en raulað af gleði allan daginn. Fyrir utan kannski þegar það koma svona augnablik eins og í gær þegar ég var ennþá uppi í skóla að líma saman bókina mína kl. hálf 8 þegar ég ætlaði að vera mætt á Nasa kl. 8. Var nb. búin að vera í skólanum síðan kl. 9. En það reddaðist...eins og alltaf. Og það var sko gaman. Ég er búin að sjá alveg heilan helling, miklu miklu meira en ég sá fyrstu tvö kvöldin í fyrra.
Og hey...tékkið á þessari síðu og gáið hvort þið sjáið einhver kunnugleg andlit=)