Ég vildi að ég ætti græjur. Vill einhver gefa mér græjur? Svo vantar mig líka ferðageislaspilara eða kannski minidiskaspilara.................vill einhver gefa mér svoleiðis? Ég á afmæli eftir 10 daga. Ég skora á ykkur öll................
Ég er búin að vera fullkomlega einangruð í dag..........ég er ekki búin að tala við nokkurn mann.......nema fjölskyldu mína (þau eru öll villimenn). Jú reyndar var ég dugleg og fór í sund í morgun og synti og þá hitti ég Eddu og Thelmu.
Reyndar var ég ekkert rosalega dugleg því að ég synti harla lítið. Það var ekki hægt að synda neitt að ráði fyrir öllu gamla fólkinu sem silaðist áfram á metershraða á klukkustund eftir öllum sundbrautunum. Þetta kennir mér að fara ekki í sund svo snemma á laugardagsmorgni því þá er allt gamla fólkið á sveimi. Ég hef tekið eftir því á langri ævi minni að gamalt fólk vaknar alltaf rosalega snemma. Klukkan svona sex eða eitthvað.
Ekki ætla ég að vera svoleiðis þegar ég kemst á eftirlaun..............nei, ég ætla að njóta þess að geta sofið út.
Mig langar svo sjúklega í sumarfrí. Mig hefur aldrei langað jafn mikið í nokkurn hlut á minni löngu ævi. Ég held að ég sé að verða klikk. Já meðan ég man, þá er ég búin að skíra nágranna mína, kóngulærnar. Eða ég meina gefa þeim nöfn, ég get auðvitað ekki skírt þær því ég veit ekkert hvaða trú þær aðhyllast. Þær heita Gúnter, Gorgerður, Hergils, Bertill og Jón. Ég hef ekkert séð þær í allan dag og ég er að vona að þær séu ekki einhversstaðar inni hjá mér, undir sæng eða eitthvað svoleiðis, því að glugginn minn var opinn í dag :/
Ég vona að fólk sem þekkir mig ekki sé ekki að lesa þetta því það gæti haldið að ég væri bara klikkalingur eða algjör lúði eða eitthvað...............sem ég er ekki.
Og þó, kannski er ég þetta tvennt. En mér er alveg sama.