Úff....það er sko flóknara en margur kynni að halda að plana eitt sumar. Sérstaklega þar sem mitt verður alveg einstaklega flókið.
Í fyrsta lagi mun ég bara vinna í Melabúðinni kvöld og helgar og vinna að því að klára stúdentsprófið mitt í fjarnámi á daginn. Ef allt gengur að óskum mun ég bara eiga einn áfanga eftir í haust og þ.a.l. útskrifast um jólin. Partýpartý.
Í öðru lagi mun ég halda út í óvissuna þann 24. júní ásamt Agli og fleirum og fljúga til Danmerkur á Hróarskeldu. Svo var planið að tjilla í Danmörku eða Þýskalandi eða eitthvað í viku og fara heim. Nú er planið hins vegar að ferðast út um alla Mið-Evrópu í tvær vikur, fara svo til Þýskalands og hitta vonandi Fionu (var að senda henni bréf) og kannski Jönu og fljúga þaðan til London og hitta Guggu og Beccu og fara með þeim til Brighton að djamma með öllu samkynhneigða fólkinu þar. Fljúga svo að lokum heim í kringum 25. júlí.
Þá þarf ég að breyta flugmiðanum mínum heim frá DK 9. júlí í heim frá London 25. júlí, kaupa interrail miða, kaupa flug frá Munchen til London o.s.frv.....
Ok, vildi bara koma þessu niður á blað. Farin í afmæli!