Nei sko compose formið er orðið blátt!
Kletturinn ég, sem hef ekki orðið veik síðan ég var í grunnskóla hér forðum (þá meina ég alvörunni veik, ekki veikindi sem á einn eða annan hátt er hægt að rekja til ofneyslu áfengis og þá er ég heldur ekki að tala um eyrnabólgu) er núna í rúmar þrjár vikur búin að vera +/- veik. Þ.e. veik og svolítið slöpp og svo hress í pínu stund en svo svolítið slöpp aftur og nú, veik. Ég vil ekki varpa sökinni á atvinnu mína, það er of ódýrt. Ég var líka fílhraust fyrir áramót. Ég hef eytt þessum veikindamorgni í það að afla mér vitneskju um teskeiðar, menningarlega veikindadægravöl (lestur), svefn og í það að sjúkdómsgreina sjálfa mig. Fyrst datt mér í hug eyðni en ég hvarf frá þeirri tilgátu snemma. Ég hef nú komist að þeirri niðurstöðu að ég þjáist af bráðri berkjubólgu. Það er bronkítis á útlensku sem er aðeins minna gay. Ég ætla að notast við það heiti.
Ég er viss um að ef ég myndi lesa allar greinarnar á doktor.is gæti ég orðið nokkuð góður heimilislæknir. A.m.k. miðað við mína reynslu af heimilislæknum sem gera ekkert annað en að samþykkja fyrirfram ákveðna sjúkdómsgreiningu mína og gefa mér alltaf sama pensillínið. (Ég fer reyndar alltaf á læknavaktina rétt fyrir lokun, ég á kannski ekkert að búast við betri þjónustu).
Nei...bara djók. Heimilislæknar eru ágætir.
Annars er ég alltaf bissí eins og venjulega, við að gera merkilega og menningarlega hluti. Afrakstur gríðarlegra anna síðustu vikur (reyndar síðust ára, næstum því áratuga) mun koma fyrir augu almennings núna fljótlega. Gæti samt dregist í nokkur ár í viðbót, maður veit aldrei.
Blablabla, blablabla.
Takk fyrir.