Þetta mun vera 298. færsla mín síðan ég hóf minn glæsta, rósum prýdda bloggferil einhverntímann í öndverðu. Ég óska eftir hugmyndum um hvernig ég á að halda upp á 300. færsluna sem mun líta dagsins ljós innan skamms.
Úff...þetta verður sko maraþonhelgi í ritgerðarskrifum og verkefnalausnum og próflestri skal ég segja ykkur. Ég er ekki alveg 100% viss um að ég hafi hana af. Það er alveg skuggalega lítill tími til stefnu fyrir óhugnanlega mikið dótarí sem þarf að klárast. Jeremías minn. En það þýðir víst lítið að kvarta og kveina, sérstaklega þar sem ég get ekki kennt neinum um öðru en sjálfri mér. Já, það var víst ég sem gróf mér þessa djúpu holu sem ég er stödd í. Þetta er nú samt alveg ágætis hola þannig séð en bara svolítið djúp...og full af skít. Það er eitthvað með mig og að fara erfiðu leiðina. Ég er samt hætt að fara í kaldar sturtur (í bili). Og stundum loka ég glugganum á nóttunni þegar það er bæði frost og vindur.
Það er bara að spýta í lófana og bíta á jaxlinn og leggja svefninn á hilluna í smá tíma. Hlusta á góða tónlist, fá sér nammi og taka eitt skref í einu...
Vitið þið hvernig maður segir rithandarfræði á ensku? En fiðrildafræðingur? Nei...það hélt ég heldur ekki, en það get ég sko sagt ykkur! Þeir fjölmörgu sem vilja verða rithandarfræðingar ættu jú að hafa á hreinu að rithandarfræði útleggst sem graphology á ensku. Fyrir þá sem hinsvegar hafa brennandi áhuga á fiðrildum, ja...eða mölflugum, ættu að íhuga fiðrildafræðinginn sem ævistarf = lepidopterist.
Ég vildi bara koma þessu á framfæri, því þetta er jú öllum mikilvægt að vita þegar út í hinn harða heim er komið.
Persónulega væri ég til í að verða myntfræðingur, eða numismatist upp á enska tungu.
Jæja, ég ætla að halda áfram að læra fyrir enskupróf.
Bjarki Hreinn Viðarsson. Í dag er þessi ungi maður búinn að ásaka mig um heimsku, segja mér að fokka mér, siga á mig hundinum, neita að útnefna mig sem stúlku vikunnar (og jafnvel dreng vikunnar) á blogginu sínu, allt þetta án minnstu eftirsjár, og síðast en ekki síst...fá sér hrísgrjón með tómatsósu í kvöldkaffi.
Ég vona að þú sért ánægður með þig, Bjarki. Til hamingju.
Gærkvöldið var hresst...dagurinn í dag er það hinsvegar ekki.
Lag helgarinnar:
Ensími - Arpeggiator
P.s. Það er til folk.is/tussurnar, folk.is/tussurnar2, folk.is/tussurnar3 OG blog.central.is/tussurnar. Ég hef ekki komist til þess að rannsaka fleiri afbrigði af þessu mjög svo einkennilega veffangi. Frumleikinn alveg...