Mig langaði bara að prófa að vera duglegur bloggari sem bloggar upp á hvern einasta dag eins og sumir bloggarar sem ég þekki. Einn sá duglegasti sem ég veit um heitir Helga Þóra og er Melabúðar- og jólastrumpur.
Reyndar bloggaði ég ekki á sunnudaginn...var að fatta það núna.
Í dag er ég bara búin að vera að reyna að svamla í öllum lærdómnum mínum, ekkert merkilegt um það að segja. Jú, vitiði hvað? Í Sviss fengu konur ekki kosningarétt fyrr en árið 1971!
Morgundagurinn verður eflaust skemmtilegri. Og svo kemur bráðum helgi:D
Ég hlakka svo til eplaballsins:) Þó svo að ég hafi farið á skemmtilegri böll en eplaböll þá hef ég miklar væntingar til miðvikudagsins. Það er kannski vegna þess að ég sakna nokkurra Kvennskælingja...
Núna er ég samt að DRUKKNA í lærdómi nánast í orðsins fyllstu merkingu, próf í dag, próf á morgun, ritgerð hinn, hópverkefni hinn, próf hinn o.s.frv....En það mun allt reddast!