Jæja já. Nú ætla ég sko að blogga duglega! Ég hef bara ekki bloggað svona lítið síðan ég byrjaði, samt er maður í sumarfríi og svona. Tíminn flýgur, sem er alls ekki nógu gott. Á sumrin á tíminn helst ekki að líða neitt. En það er bara svona þegar maður er að vinna allan daginn og gerir ekki annað en að bíða, fyrst eftir að klukkan verði hálf tíu, síðan tólf og svo þrjú og svo loksins fimm. Þvílík sóun á góðum tíma. Annars er bara mjög fínt að vinna í Grasagarðinum. Sérstaklega þegar það er gott veður og garðurinn er fullur af lífsglöðu fólki.
Þessi helgi er búin að vera frekar í rólegri kantinum, á föstudaginn fór ég að sofa klukkan ellefu, haha! Það er það skynsamlegasta sem ég hef gert lengi. Í gær var ég að passa til hálf tólf en heimsótti svo Lenu. Núna er ég að keppast við að hlusta á alla Placebo diskana til að undirbúa mig fyrir tónleikana sem eru á miðvikudaginn. Ég verð að segja að mér leiðist það alls ekki, ég er bara farin að hlakka mjög mikið til.
Næsta vika verður alveg frábær, bara fjórir vinnudagar því síðan verður stefnan tekin norður í Eyjafjörð í okkar árlegu (er ekki í lagi að segja það núna?) útilegu í sveitina til ömmu og afa.
Og síðan er bílprófið mitt innan seilingar, líklega kemur það í þar næstu viku :D
Egill hringdi í gærkvöldi frá Hróarskeldu úr tíkallasíma því honum leiddist eitthvað, hann var búin að týna vini sínum og ekki mikil von til að finna hann innan um hinar hundrað þúsund mannekjurnar á næstunni (sem er einn þriðji af íslandi ef þið gerið ykkur ekki grein fyrir því). Það er víst ekki gott að vera símalaus þarna. En hann er samt búinn að skemmta sér mjög vel heyrðist mér, Muse eru í kvöld og hann ætlar að vera fremst og taka fullt af myndum fyrir mig :D
En jæja ég er að fara í kringluna að eyða pening. Blessbless.